Browsed by
Author: andrymi

Andrými þarf á stuðningi ykkar að halda !

Andrými þarf á stuðningi ykkar að halda !

Kæru vinir og félagar Andrýmis 🖤 Andrými þarf á stuðningi ykkar að halda ! Síðast þegar við kölluðum eftir aðstoð var það vegna þeirra áhrifa sem fjöldatakmarkanir Covid-19 höfðu á getu Andrýmis til að standa undir rekstrarkostnaði. Í kjölfarið gerði Andrými viðbótarsamning við Reykjavíkurborg um tímabundna lækkun á leigu, en eftir að hafa skilað inn uppgjöri fyrir árin 2019-2022 kom í ljós að Andrými stóðst ekki þær kröfur sem Reykjavíkurborg hafði sett til þess að lækkunin myndi gilda. Því þarf…

Read More Read More

Yfirlýsing vegna ummæla sóttvarnalæknis um hópsmit á meðal flóttafólks

Yfirlýsing vegna ummæla sóttvarnalæknis um hópsmit á meðal flóttafólks

Við undirrituð lýsum yfir alvarlegum áhyggjum af þeim málflutningi sem Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hafði uppi á sóttvarnarfundi þann 4. júní s.l. er hann ræddi kórónuveirusmit sem greinst hafði á meðal flóttafólks á Íslandi. Viljum við sérstaklega benda á alvarleika ummæla sem höfð voru eftir Þórólfi í  kvöldfréttum Stöðvar tvö sama dag* þar sem hann segir: „Það eru alls konar sjónarmið sem maður hefur heyrt að séu uppi hjá þessum hópi. Þetta er náttúrulega fólk sem er oft með aðrar skoðanir…

Read More Read More

Landsréttur hafnar áfrýjunarbeiðni í setuverkfallsmálinu

Landsréttur hafnar áfrýjunarbeiðni í setuverkfallsmálinu

LANDSRÉTTUR HAFNAR ÁFRÝJUNARBEIÐNI. 19 gr. TROMPAR STJÓRNARSKRÁNNA. Þann 1. desember var Kára Orrasyni birt niðurstaða Landsréttar þar sem rétturinn hafnar beiðni hans um áfrýjun á dómi Héraðsdóms Reykjavíkur til Landsréttar. Þar með er ljóst að íslenskir dómsstólar sjá ekkert athugavert við það að láta 19. gr lögreglulaga trompa þá vernd sem Stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmáli Evrópu eiga að tryggja einstaklingum hvað varðar tjáningarfrelsi og rétt til að mótmæla. Þessi ákvörðun hlýtur að færa yfirvöld einu skrefi nær því að vera…

Read More Read More

Aðgerðarsinni dæmdur „sekur“ um að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu.

Aðgerðarsinni dæmdur „sekur“ um að óhlýðnast fyrirmælum lögreglu.

Í gær féll úrskurður í máli Ríkisins gegn Kára Orrasyni sem tók þátt í setumótmælum í dómsmálaráðuneytinu á opnunartíma þann 5. apríl 2019. Kári var dæmdur sekur og er dæmt að greiða allan sakarkostnað samtals 603.560 krónur. Arngrímur Ísberg, dómari í málinu tók ekki afstöðu til einnar einustu röksemdarfærslu verjanda Kára sem byggði fyrst og fremst á réttinum til að tjá pólitískar skoðanir á almannafæri í formi mótmæla og meðalhófsreglum. Vitnisburður Kára sem og annars vitnis var einnig virtur að…

Read More Read More

Berlín: Viðtal við Liebig34 í miðri baráttu gegn útburði.

Berlín: Viðtal við Liebig34 í miðri baráttu gegn útburði.

Hin andkapítalíska barátta er margþætt. Liebig34, anarkó-hinsegin hústaka í Berlín, er fullkomið dæmi. Í baráttu þeirra gegn vöruvæðingu húsnæðis, kapítalisma og feðraveldinu, hafa þau verið tákn fyrir rótækan hinsegin femínisma í 30 ár. Núna stendur verkefnið frammi fyrir hótun um úrburð. Þegar litið er til alls gildisins og innblástursins sem verkefnið Liebig34 hefur gefið, er ómögulegt að það verði fjarlægt. Liebig34 verður áfram! Þetta viðtal er ætlað til þess að veita innsýn í gífurlegt virði Liebig34 með þeirri von að…

Read More Read More

Aðalmálsmeðferð gegn einstaklingi sem tók þátt í setumótmælum í apríl 2019

Aðalmálsmeðferð gegn einstaklingi sem tók þátt í setumótmælum í apríl 2019

Í dag er aðalmálsmeðferð í máli aðgerðarsinna sem handtekinn var í setumótmælum í dómsmálaráðuneytinu 4. apríl 2019. Alls voru 5 handtekin þennan dag fyrir það sama og hafa þau öll verið ákærð. Ákæran er: Þau hlýddu ekki fyrirmælum lögreglu. Þegar mótmælin áttu sér stað var dómsmálaráðuneytið opið og fóru mótmælin fram í andyrinu, sem var opið. Krafan var mjög einföld og lýðræðisleg: að fulltrúar úr hópi fólks sem var að sækja um alþjóðlega vernd fengi að hitta dómsmálaráðherra til að…

Read More Read More

Ný herferð frá Tabú – feminískri fötlunarhreyfingu

Ný herferð frá Tabú – feminískri fötlunarhreyfingu

Þann 24. ágúst hófu Tabú – femínísk fötlunarhreyfing herferð á samfélagsmiðlum gegn ofbeldi sem fatlað fólk er beitt. Hér eru þeirra eigin orð um herferðina: Ofbeldi gegn fötluðu fólki er staðreynd. Það er ofið inn í menningu og kerfi okkar, það er margslungið og algengt. Fatlað fólk á rétt á lífi án ofbeldis, án undantekninga, afsakana og þolendaskömmunar. Tabú – feminísk fötlunarhreyfing stendur nú fyrir herferð til að minna á friðhelgi, sjálfsákvörðunarrétt, styrk og mannlega reisn fatlaðs fólks. Við viljum…

Read More Read More

Anarkíska útvarpið „Bad News“ – Ágúst

Anarkíska útvarpið „Bad News“ – Ágúst

Þáttur 37 (08/2020) *Texti tekinn og þýddur héðan: https://www.a-radio-network.org/* Velkomin í 37. þátt Bad News (Vondra Frétta). Hér tala Reiðar raddir frá öllum heimshornum, ágúst 2020.  Í þessum hætti heyrið þið innslög frá: 1. Ákall fyrir alþjóðlega samstöðu viku við anarkíska fönga(23.-30.8.2020) 2. Radio Fragmata (Aþena): * Fréttir frá hinu svokallaða Grikklandi 3. Anarchist Assembly Valparaíso (Chile) * Yfirlýsing á núverandi fangelsun tveggja félaga. 4. FrequenzA * Viðtal um the Coordinating (stuðningur við fanga) hóp, 18. október í Chile. 5….

Read More Read More

Ráðstefna anarkískra fræða: Opin og á netinu

Ráðstefna anarkískra fræða: Opin og á netinu

Anarchist Studies Network er tengslanet ætlað fólki sem vinna með eitthvað af hinum ýmsu birtingarmyndum anarkisma. Markmið tengslanetsins er að hvetja til anarkískra fræða innan háskólasamfélagsins og að skapa tengsl milli háskólasamfélagsins og aðgerðasinna. Annaðhvert ár skipuleggur ASN ráðstefnu sem venjulega er haldin á Bretlandi. Þema ráðstefnunnar í ár er „Anarkismi í krísu“ („Anarchy in Crisis“). Er hreyfing anarkista í krísu og hvernig bregðast anarkistar við heimskrísum (hlýnun jarðar, efnahagskreppu, heimsfaraldri, o.s.frv.)? Vegna covid-19 heimsfaraldursins mun ráðstefnan ekki eiga sér…

Read More Read More

Ári seinna ræðst dómkerfið til atlögu – Ofsóknir ríkisvaldsins á hendur aðgerðarsinnum No Borders Iceland

Ári seinna ræðst dómkerfið til atlögu – Ofsóknir ríkisvaldsins á hendur aðgerðarsinnum No Borders Iceland

Þriðjudaginn 17. ágúst kom lögregla á heimili aðgerðarsinna sem tók þátt í friðsælum mótmælum  í mars 2019 gegn brottvísunum og slæmri meðferð íslenskra yfirvalda á flóttafólki. Lögreglan lét ekki vita af sér fyrirfram og hafði ekki reynt að ná í viðkomandi í síma. Lögreglan neitaði að hafa samband við lögmann viðkomandi og hótaði að handtaka hann. Ástæða heimsóknarinnar er sú að viðkomandi er sakaður um að hafa óhlýðnast fyrirmælum lögreglu á friðsömum mótmælagjörningi í mars 2019. Gjörningurinn fór fram fyrir…

Read More Read More