Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

Yfirlýsing vegna ummæla sóttvarnalæknis um hópsmit á meðal flóttafólks

Við undirrituð lýsum yfir alvarlegum áhyggjum af þeim málflutningi sem Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hafði uppi á sóttvarnarfundi þann 4. júní s.l. er hann ræddi kórónuveirusmit sem greinst hafði á meðal flóttafólks á Íslandi. Viljum við sérstaklega benda á alvarleika ummæla sem höfð voru eftir Þórólfi í  kvöldfréttum Stöðvar tvö sama dag* þar sem hann segir:

„Það eru alls konar sjónarmið sem maður hefur heyrt að séu uppi hjá þessum hópi. Þetta er náttúrulega fólk sem er oft með aðrar skoðanir á til dæmis Covid og smitsjúkdómum og bólusetningum. Það er erfitt að nálgast það út frá þeim vinkli. Svo geta líka komið sjónarmið sem gera það að verkum að það geti breytt stöðu þeirra um alþjóðlega vernd hér, að stjórnvöld geti þá gripið til ráðstafana. Þetta er mjög flókið og það er erfitt að segja hvað er hvað í þessu. En það er greinilegt að við erum með hópa sem eru með aðrar skoðanir og álit á því sem við erum að gera, sem getur gert okkur dálítið erfiðara fyrir, náttúrulega.“

Þessi ummæli eru til þess fallin að ala á ótta og fordómum í garð flóttafólks og hælisleitenda og það verður að teljast alvarlegt að þeim sé haldið fram í fjölmiðlum gagnrýnislaust. Það á sérstaklega við þegar um er að ræða einstakling sem alþjóð lítur til og hlustar á eftir leiðbeiningum og upplýsingum á tímum heimsfaraldurs.

Flóttafólk og hælisleitendur eru einhver jaðarsettasti hópur samfélagsins. Sem slíkur er hópurinn í afar viðkvæmri stöðu gagnvart Covid19 eins og öðrum heilsufarsvanda á borð við þunglyndi, kvíða og sjálfsvígshugsanir, sem mælist umtalsvert hærri á meðal þessa hóps en annarra. Það er því eðlilegt að gera þá kröfu til fólks í áhrifastöðum að vanda sérlega vel til orða sinna í umfjöllun um jafn jaðarsettan hóp og raun ber vitni, hóps sem þess fyrir utan á sér ekki marga málsvara í samfélaginu. Ólíklegt er að Þórólfur hafi vísvitandi beitt orðræðu sem viðheldur brennimerkingu og jaðarsetningu flóttafólks en því miður var það raunin óháð ásetningi.

Þess má vænta að fólk á flótta hafi alls konar skoðanir á Covid, bólusetningum og smitsjúkdómum, enda er um að ræða gífurlega stóran og fjölbreyttan hóp fólks, líkt og Evrópubúar eru. Tvennt í málflutningi Þórólfs er einkar varhugavert; í fyrsta lagi að tala á þann veg að allir hælisleitendur og flóttafólk, eða a.m.k. stór hluti þeirra, deili skoðunum um Covid og bólusetningar sem stangast á við skoðanir „okkar“ (hver svo sem þessi „við“ erum). Í öðru lagi er mjög varhugavert og í raun rangfærsla að tileinka einhverjum einum hóp þann eiginleika að hafa „aðrar skoðanir og álit á því sem við erum að gera“ hvað varðar smitvarnir og bólusetningar þegar það liggur ljóst fyrir að í nær öllum Vesturlöndum hafa hópar fólks, sem flest er fætt og uppalið á Vesturlöndum,  farið fyrir mótmælum, herferðum og dreift ýmiskonar rangfærslum um bólusetningar, Covid og smitsjúkdómavarnir. Til að mynda eru það nær eingöngu hvítir Íslendingar sem fara fyrir slíkum hópi hérlendis.

Rétt er að benda á, eins og sóttvarnalæknir kemur sjálfur stuttlega inn á í fyrrnefndri frétt Vísis, að sumir hælisleitendur hafa ástæðu til að óttast að neikvæð niðurstaða úr kórónuveiruskimun verði til þess að þeir verði sendir úr landi nauðugir. Þeir hælisleitendur sem fram til þessa hafa hafnað skimun fyrir brottvísun hafa verið með öllu einkennalausir og hafa ekki haft ástæðu til að óttast það að vera smitaðir af veirunni.

Sé það raunin að sumir úr hópi flóttafólks og hælisleitenda vantreysti yfirvöldum og þori ekki að reiða sig á að kórónuveiruskimanir séu framkvæmdar með þeirra hagsmuni að leiðarljósi hvetjum við, undirrituð, sóttvarnalækni og samstarfsfólk hans til að eiga í opnu samtali við flóttafólk og hælisleitendur á Íslandi, rétt eins og aðra íbúa landsins, og finna út úr því í sameiningu hvernig hægt er að tryggja hagsmuni allra sem byggja landið, flóttafólks og hælisleitenda þar með talið, gagnvart Covid19.

Um leið skorum við á Útlendingastofnun að hætta tafarlaust öllum brottvísunum á hælisleitendum og taka aftur upp þjónustu við heimilislausa hælisleitendur enda ljóst að heimilisleysi og fátækt er stór áhættuþáttur þegar kemur að persónulegum og samfélagslegum sóttvörnum. Einnig skorum við á Þórólf Guðnason að biðjast afsökunar á fyrrnefndum ummælum sínum og gæta í framhaldi ítrustu varúðar þegar kemur að því að alhæfa um skoðanir ákveðinna hópa samfélagsins, þá sérstaklega hópa sem nú þegar eru berskjaldaðir fyrir auknum fordómum og útskúfun.

No Borders Iceland

Solaris – hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk

Refugees in Iceland

Réttur barna á flótta

Stelpur Rokka

Black lives matter Iceland

IWW – heimssamband verkafólks á Íslandi

Rauða Regnhlífin

Slagtog – félagasamtök um femíníska sjálfsvörn

Félagið Ísland-Palestína

Samtökin ’78

Tabú

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi

Snarrótin

Vaka – hagsmunahreyfing stúdenta

Röskva – stúdentahreyfing

Q – félag hinsegin stúdenta

Trans Ísland

Ísland-kúrdistan

Grasrótarhópar í Andrými

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *