hvernig get ég tekið þátt?
Unnið eftir fyrirkomulagi sem byggir á samþykki allra sem láta ákveðið mál sér viðkoma, sem við köllum ákvarðanatöku byggða á samhljóðan. Hugmyndafræðin á bakvið þetta fyrirkomulag er sú að átök eru ekki endilega af því slæma, og gagnrýni, hópvinna og fjölbreyttar raddir eru ómissandi hluti í baráttu gegn undirokun og yfirgangi.
„Við verðum að læra að lifa í sátt og samlyndi, að leysa úr átökum okkar á óofbeldisfullan hátt og komast að ákvörðunum í sameiningu og samkvæða. Við verðum að læra að meta fjölbreytileika og virða allt líf, ekki einungis á efnislegu sviði, heldur einnig á tilfinningalegu, vitsmunalegu og andlegu svið. Við sitjum öll í súpunni saman.“ (On Conflict and Consensus : a handbook for formal decisionmaking.)
Það er ekki meðfæddur eiginleiki að geta tekið ákvarðanir byggða á samhljóðan, heldur þarf að læra það. Hægt er að læra með því að mæta á fundi þar sem farið er eftir slíku fyrirkomulagi og fygjast með. Einnig er hægt að lesa sér til í handbókum á við þessa sem vitnað er í hér að ofan.
hvaða verkefnum get ég tekið þátt í?
Að halda sjálf-skipulögðu félagsrými gangandi felur í sér mikla og fjölbreytta vinnu. Í andrými er starfandi kjarna hópur sem sér um að öllum helstu verkefnunum sé sinnt.
Hér að neðan er listi yfir tegundir verkefna sem þarf að sinna.Listinn er ekki tæmandi og mun breytast í takt við þau störf sem þarf að sinna á hverjum tímapunkti:
Fjáröflun: Finna viðeigandi styrki eða aðra fjáröflunarmöguleika, skipuleggja viðburði sérstaklega til fjáröflunar og hvetja fólk til að setja upp mánaðarleg framlög.
Opið hús: Sjá um opin hús, taka á móti nýju fólki, kynna rýmið og halda uppi góðri stemningu.
Samstaða og aðgengi: Skilgreina hvað öruggara rými þýðir, búa til viðmið sem hægt er að vinna eftir, sjá um að halda námskeið um öruggara rými og samstöðu. Tryggja að allir hópar sem koma í andrými upplifi að þau geti verið virkir þátttakendur í starfinu og ákvarðanatöku hafi þau áhuga á því.
Eldhús: Í andrými er fullbúið eldhús og nokkuð reglulega eru haldnir samfélagskvöldverðir. Þá vantar hjálp við að safna innihaldsefnum, elda og þrífa.
Ókeipis markaðurinn og frískápur: Matarmarkaður þar sem fólk getur komið og fengið ókeypis mat. Verkefni snúast um að sækja eða rusla mat fyrir markaðinn og frískápinn, vera á staðnum og taka á móti fólki þegar markaðurinn er opinn, sinna þrifum sem tengjast hvoru tveggja.
Fríbúðin: Fara reglulega yfir föt í fríbúðinni, taka myndir fyrir samfélagsmiðla og almennt utanumhald.
Útávið samskipti: Sjá um að fjölmiðlaumfjöllun eftir því sem við á, samskipti við leigusala og nágranna, verkefni sem snúast að því að láta hópa og fólk vita af rýminu og hvað það hefur upp á að bjóða.
Tækni: Vinna í heimasíðunni og hverju því sem er tæknitengt innan starfsemi Andrýmis, t.d. sinna servernum, interneti og fleira.
Dagskrá: Skipuleggur dagskrá komandi mánaðar, fundi, viðburði og annað sem á sér stað í andrými. Tilkynningar á Facebook, vefsíðu og eftirlit með tölvupósti. Einnig sér þessi hópur um að koma áfram upplýsingum um tímasetningu funda osfrv.
Samfélagsmiðlar: Hanna efni fyrir samfélagsmiðla andrýmis, fylgjast með skilaboðum sem berast þangað, o.fl.
Húsverk: Sjá um viðhald á húsinu, bæði hvað varðar stærra viðhald sem og regluleg þrif.
Fjármál: Sjá um bankareikning, ársreikninga o.s.frv.
Fyrir hvert verkefnasvið er skipuð ein umsjónarmanneskja (e. bottomliner), þ.e.a.s. manneskja sem passar að öllum störfum sé sinnt, með því að minna á og taka við staðfestingum á kláruðum verkum. Starf umsjónarmanneskju rúllar á milli einstaklinga.
Allsherjarfundir andrýmis eru haldnir fjórum sinnum á ári. Á þeim fundum koma öll sem nýta rýmið saman og skiptast á upplýsingum og fólk fær tækifæri til að taka að sér ný verkefni eða hjálpa þar sem þarf. Allar helstu ákvarðanir varðandi rýmið eru teknar á þessum fundum, en kjarnahópur andrýmis sér um ákvarðanir á milli funda sem varða minni mál. Öll sem hafa áhuga á starfinu en eru óviss um hvort þau vilji taka þátt eru velkomin á allsherjarfundina til að fá tilfinningu fyrir starfseminni.

hvernig get ég byrjað?
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt í vinnunni sem felst í einhverjum af þessum hópum (einum eða fleirum) getur sent póst eða skilaboð á okkur á andrymi@andrymi.org eða á samfélagsmiðlum (Instagram: @andrymi_andrymi or facebook: andrymi.andrymi) og við höfum samband við þig til baka.