Browsed by
Author: Satan Níðhöggr

Róttækt bíó, beint frá býli

Róttækt bíó, beint frá býli

Nú þegar stjörnulið mannvitsbrekkna af hægrivæng íslenskra stjórnmála vælir enn á ný undan þeim atburðum vetrarins 2008-2009 sem ranglega* hafa verið kenndir við búsáhaldabyltingu — svo ekki sé minnst á hin sígildu og fyrirsjáanlegu viðbrögð kollega þeirra af vinstrivængnum sem keppast réttilega** við að sannfæra alla og engan um að pólitík þeirra sé varðmönnum ríkjandi ástands alls ekkert hættuleg — er ekki úr vegi að benda áhugasömum á sjónarhorn sem allajafna fer ofan garðs og neðan í umfjöllun um þessa sömu atburði:…

Read More Read More

CrimethInc. um 6. janúar 2021 og pattstöðu anarkista

CrimethInc. um 6. janúar 2021 og pattstöðu anarkista

Kunningjar okkar í anarkistakollektífunni CrimethInc. hafa birt stutta greiningu á atburðunum í Washington, D.C. síðastliðinn miðvikudag, þann 6. janúar 2021, þegar stuðningsfólks Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, réðst inn í þinghúsið þar í borg og reyndi að koma í veg fyrir að þingdeildirnar tvær staðfestu kjör „næsta Trumps“, eins og CrimethInc.–liðar kalla Joe Biden, komandi húsbónda Hvíta hússins. Jú, segja þau, atburðirnir hafa vissulega valdið usla og klofningi í Repúblikanaflokknum, en um leið byggja þeir enn sterkari stoðir undir hið fasíska…

Read More Read More