Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

Tölum um ofbeldismenn

When:
23rd January 2020 @ 12:00 – 13:00
2020-01-23T12:00:00+00:00
2020-01-23T13:00:00+00:00

HVAR? : Stígamót, Laugavegur 170, 105 Reykjavík
SKIPULAGT AF: Stígamót

Sagt verður frá niðurstöðum könnunar sem Kvennaathvarfið lét vinna á upplifun kvenkyns þolenda heimilisofbeldis og persónuleikaeinkennum ofbeldismanna. Tekin verður fyrir reynsla þátttakenda af ofbeldinu, afsakanir ofbeldismanna, rauðu ljósin, “fyrrverandi eru geðveikar”, svör þátttakenda við spurningunni: af hverju féllstu fyrir honum?, ásakanir um framhjáhald og þau neikvæðu og jákvæðu atriði sem þátttakendur nefndu um ofbeldismanninn.

Drífa Jónasdóttir er með B.Sc. í sálfræði frá HÍ, M.Sc. í hagnýtri félagslegri sálfræði frá Sussex University og Post graduate diploma í Afbrotafræði frá University of Brighton. Hún er í doktorsnámi við læknadeild HÍ sem stendur og jafnframt verkefnastýra í Kvennaathvarfinu.

Viðburðurinn er öllum opinn, frítt inn og húsnæðið er aðgengilegt fyrir fólk sem notar hjólastóla.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *