Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

aðgengi

Upplýsingar um aðgengi í andrými

Andrými er flutt í nýtt húsnæði á Bergþórugötu 20. Húsið er því miður ekki aðgengilegt fyrir hjólastóla í augnablikinu en það er mikið forgangsatriði hjá okkur að gera fyrstu hæð hússins aðgengilega sem fyrst. Teikningar af húsinu eru komnar til arkítekts sem er að vinna í teikningu af rampi og aðgengilegu klósetti svo við getum sent þær til Minjastofnunar í umsagnarskyldu og svo til borgarinnar.

Það er þónokkur halli upp að garðhliði og þaðan er áfram halli að fimm þrepum sem leiða upp að aðalinngangi. Hvert þrep er 17sm hátt. Breidd dyra í húsinu er á milli 50sm (dyr að baðherberginu á efri hæð) og 80sm (aðaldyrnar). Dyrnar að fundarherberginu eru 75sm á breidd eins og flestar aðrar dyr í húsinu.

Baðherbergin eru einungis á efri hæð og í kjallara eins og er.
Bæði baðherbergin eru kynlaus.