Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

calendar

Mar
7
Sat
Hinsegin fólk og heimilisofbeldi – Queer people and domestic violence @ Norræna húsið
Mar 7 @ 13:30 – 14:30

HVAR?/WHERE?: Norræna húsið/Nordic house

Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur í hinsegin og jafnréttismálum á mannréttinda-og lýðræðisskrifstofu, kynnir samstarfsverkefnið Saman gegn ofbeldi frá árinu 2018 og framhaldið af því verkefni, en það er fyrsta og eina sinnar tegundar á Íslandi.

Saman gegn ofbeldi verkefnið þjónaði því hlutverki að kortleggja heimilisofbeldi gegn hinsegin fólki og hvernig betur mætti þjónusta þann hóp.

Vinsamlegast athugið að viðburðurinn fer fram á íslensku, ensku og íslensku táknmáli. Aðgengi er fyrir hjólastóla. Viðburðurinn er hluti af opinni dagskrá aðalfundarhelgarinnar og því ekki nauðsynlegt að vera félagi til að taka þátt.

Svandís Anna Sigurðardóttir, LGBTQ+ and Equality Advisor, presents the project Together against Violence, the only of its kind in Iceland.

Together against Violence (2018) is a project by Reykjavíkurborg and the Icelandic Police, which details the problem and possible solutions to domestic violence faced by queer people in Iceland.

Please note that the event is in Icelandic, English and Icelandic Sign language. The space is wheelchair accessible. The event is part of the open program of the Annual General Meeting, and therefore it is not necessary to be a member to attend.

Rauða Regnhlíf styrktar tónleika / Rauða Regnhlíf fundraising concert
Mar 7 @ 18:00 – 23:00

Styrktar tónleika / Fundraising concert

More details will follow

Mar
8
Sun
Rauða Regnhlíf
Mar 8 @ 14:00 – 19:00

Screening and a lecture on sex work and harm reduction

(more information will follow)

Mar
9
Mon
City workers strike support meeting
Mar 9 @ 13:00 – 15:00

City workers get together to talk about the strike, state of negotiations and possible direct action

Mar
12
Thu
Liggur svarið í náttúrunni?
Mar 12 @ 15:00 – 18:30

SKIPULAGT AF: Landssamtökin Geðhjálp

HVAR? Íslensk erfðagreining, 

Liggur svarið í náttúrunni?

Framsaga og umræður um mögulega framtíð vitundarvíkkandi efna í geðheilbrigðisþjónustu – haldið í sal Íslenskrar Erfðagreiningar í Vatnsmýri fimmtudaginn 12. mars nk. Frá kl. 15:00 til 18:30.

Frummælandi er dr. Robin Carhart-Harris forstöðumaður rannsóknarseturs um vitundarvíkkandi efni hjá Imperial College í London. Robin hefur undanfarin ár leitt rannsóknir á vitundarvíkkandi efnum við háskólann. Eftir hann hafa birst á 6. tug vísindagreina um viðfangsefnið. Hann stýrði m.a. umfangsmikilli rannsókn á notkun psilocybin við alvarlegu þunglyndi og var heimildamyndin Magic Medicine gerð um þær rannsóknir.

Auk Robin munu innlendir fagaðilar halda erindi auk þess sem notendur lýsa reynslu sinni. Í lokin sitja þátttakendur í pallborði þar sem málþingsgestir geta spurt spurninga. Endanleg dagskrá liggur fyrir í byrjun febrúar og verður kynnt hér á viðburðinum og í fjölmiðlum.

Monthly Happiness Get Together Group / Mánaðarlegur hamingjuhittingur
Mar 12 @ 18:00 – 20:00

A monthly group get together to discuss and work on increasing personal and community happiness.

Free admittance. Anyone interested welcome. Icelandic and English language accommodated.

Mar
15
Sun
Bíókvöld Svarthols menningarneindar: The Net // Cultural nothingness’ movienight: The Net
Mar 15 @ 20:00 – 22:30
Bíókvöld Svarthols menningarneindar: The Net // Cultural nothingness' movienight: The Net

Svarthol—menningarneind kynnir:
The Net, Heimildamynd eftir Lutz Dammbeck (2003)
Enska & þýska (með enskum texta), 115 mínútur
Sunnudaginn 15. mars 2020—kl. 20:00
Andrými—Bergþórugata 20—101 Reykjavík
Frítt inn—en frjáls framlög til Andrýmis vel þegin

Á árunum 1978–1985 stóð Ted Kaczynski, fyrrum stærðfræðiprófessor, einsamall fyrir sprengjuherferð gegn fólki innan úr bandaríska tæknigeiranum; þrír létu lífið & 23 særðust. Hvaða erindi á Kaczynskisem gefið hafði akademískan feril upp á bátinn fyrir einfalt líf úti í náttúrunni—í kaleidóskópíska frásögn af netheimum & hryðjuverkum, útópíustjórnmálum & amerískri andmenningu, LSD & CIA, sálfræðingnum Timothy Leary & eðlifræðingnum Heinz von Förster, rithöfundinum Ken Kesey & síkadelísku rokkhljómsveitinni Grateful Dead?

Um miðbik 20. aldar kom fram á sjónarsviðið herskari hugsuða vopnaður nýjum uppgötvunum í tækni & vísindum, stýri- & kerfisfræði, margmiðlunarlist, hernaði & sálfræði, sem áttu eftir að hafa gríðarleg áhrif á flestum sviðum mannlegrar tilveru. Samhliða örri þróun internetsins á síðasta fjórðungi 20. aldar vöknuðu upp áleitar spurningar um áhrif takmarkalausra framfara í upplýsingatækni á náttúru & samfélag. Í óhefðbundinni & ögrandi heimildamynd sinni skoðar Dammbeck þessa sögu & tvinnar saman við bréfaskipti sín & lífstíðarfangans Kaczynskis.

***

Svarthol—cultural nothingness presents:
The Net, Documentary by Lutz Dammbeck (2003)
English & German (with English subtitles), 115 minutes

Sunday March 15th 2020—8:00 p.m.
Andrými—Bergþórugata 20—101 Reykjavík
Free entrance—but feel free to donate a bit for Andrými’s rent

From 1978 to 1985, former math professor Ted Kaczynski ran a lone-wolf bombing campaign, targeting individuals from within the U.S. techno-industry—of whom three died & 23 were injured. Where does Kaczynski—who had turned his back to an academic career for a simple life in rural Montana—fit into a kaleidoscopic narrative, including the internet & terrorism, utopian politics & American counter-culture, LSD & CIA, psychologist Timothy Leary & physicist-philosopher Heinz von Förster, author Ken Kesey & psychedelic rock-group Grateful Dead?

In the mid-20th century, a network of thinkers came forth with new discoveries in science & technology, cybernetics & systems theory, multimedia art, psychology & military research—affecting all spheres of human life. With the development of the internet during the last quarter of the 20th century, the question arose: What does the unlimited development of information technology mean for nature & society? In his unorthodox & provocative documentary, Dammbeck examines this story—interweaving it with his & Kaczynski correspondence.

Apr
28
Tue
BDSM Kraft Kvoldsins / BDSM Iceland Craft night 2
Apr 28 @ 19:00 – 23:00

Come together and craft BDSM related toys / items.

 

Making a safe space for the queer/BDSM identifying community.

May
13
Wed
Private event
May 13 @ 16:00 – 21:00

Private event

May
15
Fri
Private event
May 15 @ 17:00 – 19:00