Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

calendar

Dec
24
Sun
Andrými Opið Hús // Open House
Dec 24 @ 11:00 – 17:00

Þessi viðburður er fyrir alla, hvort sem þú heldur upp á jólin eða ekki. Núna er tíminn til að fagna sólstöðum, góðum félagsskap, heitu súkkulaði, góðum mat og tilvist róttæks félagsrýmis í Reykjavík.
Eldhúshópurinn mun bjóða upp á einhvern mat (frá um 13:00) og við viljum einnig hvetja þá sem geta til að koma með mat til að deila með sér -> þetta er pálínuboð
Við opnum klukkan 11:00 og fjölskyldur eru sérstaklega velkomnar. Vegan vöfflur og heitt súkkulaði verða í boði.
Um klukkan 13:00 hefst pálínuboðið og við borðum hádegismat saman. Eftir getur þú verið áfram og haft það notalegt, notið útsýnisins og kannski horft á bíómynd.
Andrými er aðgengilegt hjólastólum. Frekari upplýsingar um aðgengi má finna hér: https://andrymi.org/adgengileg/
//
This event is for everybody, no matter if you celebrate Christmas or not. It’s anyways time to celebrate solstice, good company, hot chocolate, tasty meals and the existence of a radical social space in Reykjavík.
The kitchen crew will provide some food (from around 13.00) and we also want to encourage those who can to bring a meal to share -> It’s a potluck ❤
We open the doors at 11 and families are especially welcome. There will be vegan waffles and hot chocolate.
At around 13.00 the potluck will start and we will have lunch together.
Afterwards you can chose to stay and be cosy, maybe watch a movie and enjoy the great view of Tjörnin from the windows of Andrými.
Andrými is wheelchair accessible. Further accessibility info is available here: https://andrymi.org/?page_id=574&lang=en

Jan
7
Sun
Kvikmyndakvöld // Movienight
Jan 7 @ 17:00 – 19:00

Kvikmyndakvöld er haldið aðra hverja viku og verða sýndar kvikmyndir sem stuðla að auknum skilningi á baráttu jaðarhópa, á útskúfuðum reynsluheimum og samstöðu gegn kúgun víðsvegar úr heiminum.
Myndin sem sýnd verður næsta sunnudagskvöld (7. jan) er kúrdíska myndin „Bekas“.
Hér má sjá trailer:
https://www.youtube.com/watch?v=VPre6KTyGas
Fyrir myndina verður haldin stutt kynning á aðstæðum Kúrda, bæði í heimalöndum þeirra og á Íslandi.
Hægt er að stilla hljóðið nokkuð hátt og við reynum ávallt að finna texta fyrir myndirnar. Rýmið er aðgengilegt fyrir hjólastóla. Frekari upplýsingar er hægt að sjá á heimasíðu Andrýmis um aðgengi:
https://andrymi.org/?page_id=635
Í Andrými gilda ákveðin viðmið varðandi samskipti okkar við aðra sem gott er að lesa yfir, þær má finna hér:
https://andrymi.org/?page_id=729
Hlökkum til að sjá ykkur!
//
//
Movie nights are held every second week in Andrými. Next screening will be the 7th of January, and the movie is “Bekas”.
(Trailer: https://www.youtube.com/watch?v=VPre6KTyGas)
Before the screening we will have a short introduction about the Kurdish people and their situation, both in their home countries and in Iceland.
Looking forward to see you all!

Jan
11
Thu
Róttæki Vetrarháskólinn: Af mannfræði (landa)mæra // The anthropology of borders
Jan 11 @ 20:00 – 22:00
Jan
14
Sun
Skiptimarkaður – Toys And Children’s Clothes Swap
Jan 14 @ 11:00 – 16:00

(English below) Við vitum að börnin okkar hætta aldrei að stækka, en föt, leikföng og bækur vaxa ekki með þeim. Þess vegna erum við að skipuleggja þennan skiptimarkaður fyrir barnaföt og leikföng. Hugmyndin er sú að þú leggir til þá hluti sem börnin þín þurfa ekki lengur og þú getur í staðinn tekið með þér heim það sem þú og börnin þín getið nýtt ykkur.
Reglurnar eru einfaldar:
1. Átt þú bækur, skó, föt, leikföng eða eitthvað annað sem börnin þín þurfa ekki lengur? Vinsamlegast komdu með það/þessa hluti, helst flokkaða eftir stærð.
2. Fannst þú eitthvað sem þú vilt fyrir börnin þín? Þú ert velkomin að taka það heim!
3. Eigðu góðar stundir með góðum félagsskap!
Með því að mæta með föt eða leikföng til skiptanna tryggjum við að gömlu hlutirnir þínir komi til nýrra eigenda, annaðhvort hjá öðrum gestum eða Rauða Krossinum. Við athugum ekki eða teljum það sem þú tekur með, þér er frjálst að koma með eins mikið eða lítið og þú vilt.
Upplýsingar um aðgengi er að finna á www.andrymi.org

//
We know our children never stop growing but clothes, toys and books don’t grow with them. That’s why we organise this swap event for children’s clothes and toys. The idea is that you bring the stuff that your kids don’t need anymore and you can take home the things you and your children like and can make use of.
The rules are simple:
1. Do you have books, shoes, clothes, toys or anything else that your children don’t need anymore? Please, bring them, ideally organised by size.
2. Do you find something you like for your kids? Feel free to take it!
3. Spend some quality time with good friends and like-minded people, and above all have fun!
By attending this event you will make sure that your old items find new owners, either other swappers or the Red Cross. We don’t check or count what you bring, just take what you like.
You can find info about accessibility on www.andrymi.org
Contact: anika@hjalli.is

Jan
15
Mon
Fræðsla: heimili án húsnæðis // lecture: At home on the streets
Jan 15 @ 20:00 – 22:00

At home on the streets: Homeless peoples’ journeys and places in the cityscape.
By Finnur Guðmundarson Olguson

Jan
22
Mon
Róttæki vetrarháskólinn- Siðferðilegt hjálparstarf: fræðsla og umræður um hjálparstarfstúrisma
Jan 22 @ 20:30 – 22:30
Jan
30
Tue
Gagnrýni á einstaklingshyggju/heimspekilegan anarkisma frá sjónarhorni samvinnusinnaðs anarkisma // Critiques of individualist/philosophical anarchism, focusing on anarchism as cooperation
Jan 30 @ 20:00 – 22:00

Það eru til margar gerðir af heimspeki anarkista. Sumar gagnlegri en aðrar fyrir störf anarkista. Þessi fyrlestur mun fjalla um heimspekilegt yfirlit ýmsa nýrra anarkískra fræða með gagnrýnu sjónarhorni á “heimspekilegan anarkisma” Robert Paul Wolff. Þó að Wolff hafi komið með anarkisma aftur til akademískar heimspeki þá höfðu hugmyndir hans aldrei nein áhrif á neina anarkíska hreyfingunu þar sem þær voru of abstrakt og einstaklingssinnaðar til að styðja við þá frjálsu samvinnu og félagslegu ábyrgð sem störf anarkista þarfnast. Anarkísk hugmyndafræði þarf að fjalla fyrst og fremst um félagslega samvinnu.
//
There are many kinds of anarchist philosophies. Some are more conducive for an anarchist practice than others. This talk will be a philosophical overview of some of the more recent anarchist theories with a critical focus on the “philosophical anarchism” of Robert Paul Wolff. While Wolff brought anarchism back in academic philosophy his thoughts were never really embraced by any anarchist movement. It is too abstract and individualistic to support the kind of voluntary cooperation and social responsibility that is necessary for actual anarchist practice. An anarchist theory needs to put social cooperation first and center.
The event will be held in English.

Feb
12
Mon
Samfélag í borgarbúskap // Community in urban farming
Feb 12 @ 20:00 – 22:00

***Íslenska að ofan/English below***
Borgarbúskapur í okkar samfélagi
12. febrúar 2018 kl 20.00 er boðað til fundar í Andrými á Bergþórugötu
20. Tilefnið er að auka vitund okkar á milli og út í ystu viðjar
samfélagsins um öll þau ræktunarverkefni sem eiga sér stað í Reykjavík
og víðar og síst minna á fólkið sem ræktar . Útbreitt er að tala um
borgarbúskap (e. urban farming) þar á vel við líka að tala um
landbúnað innan borgar. Þá erum við ekki einungis að tala um að fólk
geti haft það sem áhugamál að rækta í sínu nánasta umhverfi heldur
einnig að færa framleiðslu matvæla að einhverju magni inn í borgirnar.
Með þessu er sýnt hvað er mögulegt, en aukin meðvitund um þær
auðlindir sem veita okkur þjónustu er síður léttvægara. Ræktunarstarf
skapar lífvænlegri borgir en gæta þarf hagsmuna þeirra verkefna þegar
ýmis konar uppbygging ógnar tilverurétt þessara verkefna.
Þennan dag verður erindi um borgarbúskap á heimsvísu (e. urban
farming).Við munum líka athuga hvað er mikilvægt þegar hann skal garð
með vistrækt (e. permaculture) getum tekið sem dæmi Bergþórugötu 20.
Sigurður Unuson, borgarbóndi og formaður Seljagarðs mun kynna þetta
verkefni.
Tungumál: Erindið í dag getur verið á íslensku eða ensku eftir þörfum.
Aðgengi: Andrými var að flytja í nýtt hús sem er því miður ekki enn
aðgenglilegt fyrir hjólastóla.

Urban farming in our community
12th of february 2018, at 20.00 in Andrými Bergþórugata 20. The
purpose is to increase the awareness between us and to the outer rims
of society about different growing projects that exist within
Reykjavík and beyond and most importantly the people behind it. Urban
farming has become a popular term which is a form of agriculture
integrated in the cities. Not only do we speak about the hobby of
growing in their local community, but also to bring the production of
food to some extent into the city. By this we see what is possible,
increase the awareness about ecological resources that provide
services is a not less important. Vegetation growing cities become
livable cities, so it is essential to protect the interest of projects
when rapid development within the city threaten their right of
existence.
This day we will have a talk about urban farming worldwide. We will
also see explore important aspect of designing a garden with
permaculture, and as an example Bergþórugata 20. Sigurður Unuson,
urban farmer and chairman of Seljagarður urban farm will present this
talk
Language: The talk can be in Icelandic or English according to needs.
Accessibility: Andrými recently moved to a new house which is
lamentably not yet accessible for wheelchairs.

Feb
15
Thu
Róttæki vetrarháskólinn – Heimili án húsnæðis. Ferðir heimilislausra um Reykjavík.c
Feb 15 @ 20:00


Talsvert hefur fjölgað í hópi þeirra sem eru heimilislausir í Reykjavík á síðustu misserum. Í erindinu fjallar Finnur G. Olguson um BS-verkefni sitt í landfræði við Háskóla Íslands, sem beindi sjónum að því hvernig heimilislausir tækjust á við aðstæður sínar og hvaða áhrif þær hefðu á ferðir þeirra í borgarlandslaginu, tengsl þeirra við mismunandi staði og daglega rútínu. Í verkefninu var rætt við þrjár manneskjur sem höfðu verið heimilislausar til lengri tíma og byggt á reynslu þeirra og upplifunum. Að auki verður velt upp ýmsum spurningum varðandi viðhorf samfélagsins til heimilisleysis, úrræði sem heimilislausum standa til boða og hvernig hægt sé að bæta þjónustu við þá.
Finnur G. Olguson útskrifaðist úr landfræði frá HÍ vorið 2017 og vinnur nú sem smiður. Hann hefur tvívegis áður flutt erindi við Róttæka sumarháskólann um náttúruvernd og loftslagsbreytingar.
Aðgengi:
Andrými er því miður ekki aðgengilegt hjólastólum eins og er. Unnið er að bættu aðgengi.
Vinsamlegast sendið tölvupóst með að minnsta kosti tveggja daga fyrirvara á andrymi@riseup.net ef óskað er eftir táknmálstúlki.

Feb
26
Mon
Borgarbúskapur í þínu nágrenni // Urban farming in your vicinity
Feb 26 @ 20:00 – Feb 27 @ 22:00

Borgarbúskapur í þínu nágrenni // Urban farming in your vicinity
26. febrúar kl. 20 verða haldin erindi frá ræktendum í áberandi
matjurtagarðagörðum í Reykjavík. Vonandi gagnlegt fyrir þá sem hafa áhuga á að fræðast um skipulag og samvinnu á mismunandi stöðum og eins þá sem vildu taka þátt í núverandi verkefni.
Sérstaklega áhugavert væri að fá þá sem vilja fá innblástur að setja upp matjurtagarða í sínu hverfi. Ræktendur kynna reynslu sína og mögulega smita áhuga til annarra. Kostir þess að rækta grænmeti eru margir persónulega, ferskari og hollari matur, umhverfisvænni framleiðsla, heilbrigð útivera og að vera í samfélagi ræktenda og læra hvert af öðru.
Lilja Sigrún ræktandi í Laugargarði, er mikill hvatamaður innan
íbúatsamtaka Laugardals að auka áhuga á ræktun í hverfinu, en reynslu sína dregur hún fyrri árangursríkum grenndargörðum.
Guðný Rúnarsdóttir ræktandi í Seljagarð hefur prufað að rækta
ýmislegt, skemmtilegast fannst henni að sjá smátómata, kamillu,
sólblóm og gúrku vaxa í garðinum og það að vinna undir beru lofti og fara svo heim með uppskeruna.
Helga Helgadóttir ræktandi í Smálöndum við Stekkjarbakka nýtur
félagsskapsins við nágranna og friðsældarinnar við að rækta grænmeti með útsýn yfir Elliðaárdal.
Staðsetning er róttæka félagsrýmið Andrými við Bergþórugötu 20. Allir eru velkomnir og aðgangur frjáls. Andrými er nýflutt og því er aðgengi enn ábótavant fyrir hjólastóla. Erindin verða á íslensku en spurningar á öðru máli geta verið þýddar.
Vonum að sjá allt áhugafólk um borgarbúskap og ræktun grænmetis og mannlífs. Sigurður Unuson, formaður Seljagarðs er frumkvöðull að þessum fundi.