Opið hús: Bókasafn Anarkista // Open house: Anarchist library
–
14 January, 2026
//ENGLISH BELOW//
Það er ekki til nein bók sem hefur í sér allan sannleika, svo anarkistar í Reykjavík opnuðu bókasafn. Bókasafnið Andspyrna er nú staðsett í andrými á Bergþórugötu 20 og samanstendur af yfir 1000 róttækum bókum, fullum af innblæstri og upplýsingum fyrir fríþenkjandi einstaklinga. Það kostar ekkert að fá lánaðar bækur frá andspyrnu og lánstími er einn mánuður.
Annan miðvikudag hvers mánaðar er opna húsið í andrými sérstaklega tileinkað bókasafninu. Þá er hægt að koma á milli 17:30-19:00 og fá meðmæli fyrir lestur, hjálp við að finna ákveðnar tegundir af bókum, spjalla um sögu bókasafnsins eða fá upplýsingar um hvernig er hægt að taka þátt í starfi bókasafnsins. Það er tilvalið að mæta, finna sér áhugaverða bók, koma sér fyrir í kósý horni og lesa í þögulli samveru við aðra.
/////
There isn’t any one book which contains the whole truth, and so anarchists in Reykjavik decided to open a library. The Andspyrna Library is located in andrými on Bergþórugata 20 and contains over 1000 radical books full of inspiration and information for free-thinking folks. There’s no cost to borrow books from Andspyrna and they may be borrowed for a month.
On the second Wednesday of each month, there will be an open house especially for the library between 17:30 and 19:00 where it’s possible to get recommendations for reading, help with finding particular types of books, chat about the history of the library, or get information about how to take part in the library. It’s great to show up, find an interesting book, find yourself a spot in a cosy corner, and read in peace with others.