Litla Lessan
–
6 August, 2026
Litla lessan er viðburður fyrir saffísk* ungmenni á aldrinum 16-19 ára (menntaskólaaldri). Litla lessan er ungmennavæn útfærsla af "Lessunni" (https://hinsegindagar.is/program/pride-lessan-2/), sem er líflegur og stór árlegur viðburður.
*Saffík er íslenskun á orðinu sapphic, sem þýðir konur eða kynsegin fólk sem laðast að öðrum konum og kynsegin fólki. Undir saffík regnhlífinni eru t.d. tví- og pankynhneigðar konur og kvár, ásamt öðrum. Saffík og WLW (women loving women) þýða að miklu leyti það sama.