Ný herferð frá Tabú – feminískri fötlunarhreyfingu
Þann 24. ágúst hófu Tabú – femínísk fötlunarhreyfing herferð á samfélagsmiðlum gegn ofbeldi sem fatlað fólk er beitt. Hér eru þeirra eigin orð um herferðina: Ofbeldi gegn fötluðu fólki er staðreynd. Það er ofið inn í menningu og kerfi okkar, það er margslungið og algengt. Fatlað fólk á rétt á lífi án ofbeldis, án undantekninga, afsakana og þolendaskömmunar. Tabú – feminísk fötlunarhreyfing stendur nú fyrir herferð til að minna á friðhelgi, sjálfsákvörðunarrétt, styrk og mannlega reisn fatlaðs fólks. Við viljum…