Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

Þjóðríkið í ruslið – Abolish the nation state

When:
17th June 2020 @ 13:30
2020-06-17T13:30:00+00:00
2020-06-17T13:45:00+00:00
Where:
Andrými
Bergþórugata 20
Þjóðríkið í ruslið - Abolish the nation state @ Andrými

***ENGLISH BELOW***

No Borders Iceland kallar til and-þjóðhátíðardags fögnuðar 17. júní sem samanstendur af tveimur vinnustofum, kvöldmat og tónlist.

Sjá nánari upplýsingar um dagskrá og aðgengi neðst.

No Borders Iceland hafnar þeim gildum sem haldið er í hávegi á 17. júní á við þjóðarstolt, þjóðernishyggju og upphafningu þjóðríkisins.

Síðustu vikur höfum við verið vitni að uppreisn í hinum svokölluðu Bandaríkjum, þar sem fólk rýs upp gegn lögreglunni, og þar með ríkisvaldinu, með kröfu um endalok rasisma, hvítra forréttinda og lögregluembættisins. Barátta gegn þjóðríkinu og öllum kúgandi aðgerðum þess fylgir í beinu framhaldi.

Fyrir okkur er þjóðríkið ekkert annað en stofnun sem ber ábyrgð á mörgum af helstu grimmdarverkum sögunnar á við þrælahald og fjöldamorðum í hverri einustu heimsálfu. Þjóðríki bera ábyrgð á mannskæðustu stríðum sögunnar, þau hafa sett á laggirnar stofnanir á við herinn, lögregluna, réttarkerfið og fangelsi, stofnanir sem svipta fólk lífi, frelsi og reisn á kerfisbundinn hátt eftir línum sem fyglja stéttaskiptingu, húðlit, kynhneigð, -vitund og -tjáningu og sem og uppruna. Við teljum ríkið einnig vera einn af helstu þátttakendum í eyðileggingu jarðarinnar, þar sem einu sjáanlegu aðgerðirnar eru ofbeldi gegn þeim sem berjast gegn þessari sömu eyðileggingu.

Við álítum þjóðríkið vera miðstýrt og stigskipt stjórnmálakerfi sem byggir á valdbeitingu, þvingun og firringu. Undirstaða þessa kerfis er afnám á möguleika hvers einstaklings til að taka sjálfstæðar ákvarðanir um eigið líf, ásamt bælingu á hvers lags sjálfsskipulaggningu hópa og samfélaga. Hvort tveggja eru atriði sem ógna hinu miðstýrða, úthlutaða og stofnanavædda valdi ríkisins.

Við viljum skapa rými til að rækta andstöðu við ríkið og ofbeldi þess, sem birtist meðal annars í innilokun og brottvísun fólks á flótta, í staðinn fyrir að leyfa þjóðernishyggju og -fögnuði að taka yfir hvern krók og kima þann 17. júní.

DAGSKRÁ:
13:30 Hús opnar, kaffi, tjill.
14:00-14:45 Vinnusmiðja: Hvernig á að styðja einstakling sem þarf að ganga í gegnum hæliskerfið á Íslandi? – Fyrri hluti
14:45-15:00 Hlé
15:00-16:00 Vinnusmiðja: Hvernig á að styðja einstakling sem þarf að ganga í gegnum hæliskerfið á Íslandi? – Seinni hluti
16:00-16:30 Kaffi
16:30-18:00 Umræðuhópur um þjóðernishyggju, þjóðríkið, anarkisma og fasísk stjórnmál.
18:30 Kvöldmatur
19:00 Tónlist

Andrými er ekki aðgengilegt hjólastólum. Sjá nánar um aðgengi hér: https://andrymi.org/is/adgengileg/
Þurfir þú táknmálstúlk biðjum við þig um að láta okkur vita með minnst 24 klst fyrirvara svo hægt sé að koma því í kring.

***ENGLISH ***
No Borders Iceland is hosting an anti-state event on the 17th of june, the event will consist of workshops, a dinner and music.

See closer description of the program and accessibility below.

No Borders rejects values celebrated on the 17th of june, such as national pride, nationalism and the upheaval of the nation state.

Today we are witnessing an uprising in the so-called United States of America, where people are rioting and fighting against the police, and thus against the State, fighting for the end of racism, white supremacy and the police institution. Fighting the State is a parallel, interrelated fight.

We “lay at the State’s feet many atrocities. We consider it as the primary culprit for slavery and genocide on every continent, for the worst wars in human history, for mass incarceration and for the destruction of the planet. We define the State as a centralized, hierarchical system of political organization based on coercion and alienation, the primordial alienation being the theft of each individual’s ability to decide over their own lives, the suppression of self-organization so that power can continue to be centralized, delegated and institutionalized.” (P. Gelderlos, Worshiping Power)

Instead of letting nationalism and and national celebration take up every inch and corner in Reykjavík in the 17th of June, we hope to create a space for resistance against the nation state and it’s violence, which amongst other things appears in the deportation machine.

Program:
13:30 House opens, coffee, chill, prep
14:00- 14:45 Workshop: Supporting individuals going through the asylum system in Iceland, part 1
14:45-15:00 Break
15:00-16:00 Workshop: Supporting individuals going through the asylum system in Iceland, part 2
16:00-16:30 Coffee break
16:30-18:00 Discussions on anti-nationalism, anti-racism, racism and anarchism.
18:30 Dinner
19:00 Music

Andrými is not accessible to wheelchairs. More precise info on accessibility to be found here: https://andrymi.org/accessibility/
If you require or would like a sign language interpreter present, we kindly ask you to let the organisers know 48 hours in advance so that it can be arranged.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *