Bergþórugata 20, 101, Reykjavik andrymi@riseup.net

Aðalfundur Íslandsdeildar UNM 2019

When:
2nd March 2019 @ 14:00 – 18:00
2019-03-02T14:00:00+00:00
2019-03-02T18:00:00+00:00
Íslandsdeild Ung nordisk musik boðar til árlegs aðalfundar laugardaginn 2. mars næstkomandi kl. 14:00. Fundurinn verður haldinn í Andrými, Bergþórugötu 20, 101 Reykjavík. Til umfjöllunar á fundinum verður aðhald og skipulag starfs félagsins næstu tvö árin. Öll þau sem falla undir viðmið um umsækjendur í umsóknarferli fyrir árið 2020 eru kjörgeng á fundinum, samanber lög Íslandsdeildar, sem finna má undir þessum hlekk: https://goo.gl/19qrDb. Tillögur um lagabreytingar skulu sendar inn á netfangið unmiceland@gmail.com fyrir fundin.
Dagskrá fundarins verður sem hér segir:
1. Yfirferð og samþykkt dagskár.
2. Val fundarstjóra, ritara og kjörstjóra.
3. Samantekt og mat á starfi síðasta árs.
4. Umræður um og formleg samþykkt laga félagsins félagsins og tillögur um lagabreytingar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu.
5. Umfjöllun um verkefni þessa árs
5. a) Tónleika- og ráðstefnuhald í Reykjavík sumarið 2019
5. b) UNM Piteå 2019
5. c) Val fyrir UNM Tampere 2020
6. Umræður um framtíðarsýn fyrir skipulag Íslandsdeildar
7. Umræður um – og kjör á stjórn (og skipulagsnefndir) félagsins
8. Annað
Við viljum hvetja alla áhugasama eindregið til þess að mæta og taka þátt í þessum umræðum og þar með stefnumótun félagsins til framtíðar.
Með bestu þökkum,
Forsvarsfólk Íslandsdeildar UNM